Eftirlit lögreglu með börum og veitingastöðum hér á landi er óeðlilega umfangsmikið.
Þetta er mat Steinþór Helga Arnsteinssonar veitingamanns, sem rekur barinn Röntgen, veitingastaðinn Skreið og Austurbæjarbíó.
Segir Steinþór engan annan bransa hér á landi lenda í því að lögregla komi inn á staðinn á besta tíma og krefji starfsfólk um kennitölur, skilríki og fleira.
Myndi ekki líðast í öðrum bransa
Oft hefur skotið upp kollinum umræða um að lögregla og aðrir eftirlitsaðilar, eins og til dæmis Skatturinn, gæti ekki meðalhófs þegar þeir ráðast í aðgerðir gegn veitingastöðum. Til að mynda réðust lögreglumenn og fulltrúar Skattsins inn á veitingastaðinn Kastrup fyrirvaralaust í hádeginu á föstudegi í fyrra og innsigluðu staðinn meðan fjöldi fólks snæddi þar.
Veltir Steinþór því upp hvort aðrar atvinnugreinar, eins og til dæmis fiskvinnslur, myndu sætta sig við viðlíka eftirlit.
„Þetta myndi aldrei líðast í öðrum bransa. Auðvitað á að hafa eftirlit en það þarf ekki að vera með svona aggressívum hætti og ekki svona óeðlilegt eftirlit.“
Fólk orðið samdauna eftirlitinu
Árið 2021 tók Steinþór Helgi við rekstri Vagnins á Flateyri í eitt sumar. Hann segir lögregluna hafa haft óeðlilega mikið eftirlit með rekstri staðarins.
„Þeir voru eiginlega alltaf komnir fyrir utan korter í lokun. Þetta eru svo óeðlileg afskipti. Ég skil alveg eftirlit og eitthvað svoleiðis en það þarf þá að vera rökstuddur grunur um eitthvað annað,“ segir Steinþór.
Segir Steinþór að að fólk þurfi að hætta vera svona samdauna slíkum vinnubrögðum lögreglunnar.
„Fólk var orðið svona samdauna þessu á Flateyri. Ég var að spyrja afhverju er löggan alltaf hérna fyrir utan og þá var sagt að þeir séu bara að vinna sína vinnu. Hvað meiniði? Er hún líka fyrir utan bankann að tjékka þar eitthvað útaf því að hún er að vinna sína vinnu? Eða fyrir utan eitthvað skip eða einhverja bókabúð? Þetta er ekki eðlilegt og fólk á ekki að vera svona samdauna því að þetta teljist eðlilegt.