„Mér finnst þetta algjörlega ferlegt og óboðleg vinnubrögð,“ segir Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, um að taka eigi Breiðafjarðarferjuna Baldur úr siglingu milli Stykkishólms og Brjánslækjar frá og með mánudeginum.
Gagnrýnir samráðsleysi
Í fyrradag var tilkynnt að Baldur sigli milli lands og Vestmannaeyja ásamt Herjólfi frá og með næsta mánudegi vegna mikilla anna í flutningum. Þetta varir á meðan gert er við eina vél Herjólfs en talið er að því ljúki upp úr miðjum júní. Á meðan verða engar siglingar að Brjánslæk en önnur ferja siglir frá Stykkishólmi í Flatey.
Gerður Björk gagnrýnir skort á samráði þegar ákvörðunin var tekin. „Við fengum tölvupóst sama dag og þetta var tilkynnt í Vestmannaeyjum. Mér finnst þessi ákvörðun bera vott um mikla vanvirðingu fyrir Vestfirðingum, fyrirtækjum á svæðinu og ferðaþjónustunni. Ég er mjög ósátt við þessi vinnubrögð.“
Gerður Björk hefur áhyggjur af áhrifunum sem þetta hefur á ferðaþjónustuna sem stólar á ferjuna. Stór hluti ferðamanna kemur með Baldri.
„Við erum með mjög stuttan glugga fyrir þessa atvinnugrein. Þegar fólk kemur ekki með Baldri þá kemur það einfaldlega ekki inn á svæðið. Það bitnar á þessari viðkvæmu atvinnugrein sem er að reyna að byggja sig upp,“ segir hún.
Borið á afbókunum
Gunnþórunn Bender býr á Patreksfirði og rekur ferðaskrifstofu. Hún tekur í svipaðan streng. „Við höfum verið að fá afbókanir og ég á von á að það verði meira um það,“ segir hún.
Hún bendir á að ferðaþjónustan fyrir vestan liggi að mestu leyti í dvala yfir vetrartímann sem geri starfsemina á sumrin enn veigameiri.
„Okkur finnst þetta virðingarleysi og skeytingarleysi gagnvart svæðinu sem slíku. Það er furðulegt að veikja atvinnulífið á einu svæði til að bjarga málum á öðru svæði. Þetta er ekki góð lausn og ekki góð stjórnsýsla,“ segir Gunnþórunn.