Fyrsti fundur nýs meirihluta í byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi var í síðustu viku. Nýr meirihluti er vongóður um að geta hafið framkvæmdir sem fyrst. Börnin í grunnskólanum á Hofsósi hafa verið bæði í íþróttum og mat í sal félagsheimilisins í bænum. Byggja á íþróttahús samtengt við núverandi grunn- og leikskóla og í því húsi verður mötuneyti.
„Núna er staðan sú að það er verið að hann íþróttahús sem fyrirhugað er að byggja við skólann og samnýta þá uppbyggingu að koma fyrir mötuneyti í sama húsi,“ segir Eyþór Fannar Sveinsson, formaður byggðarráðs Skagafjarðar.
Ekki liggur ljóst fyrir hver kostnaðurinn við uppbygginguna er en búið er að áætla og eyrnamerkja fé í hönnun og þarfagreiningu. Eyþór segir að svo eigi eftir að sjá hversu mikið þurfi til að koma verkefninu af stað.
„Við viljum helst bara byrja, ef maður á að vera hreinskilinn vill maður helst byrja á þessu skólaári sem er að koma. Það er brýn nauðsyn fyrir þessu. Við viljum reyna að koma til móts við þarfirnar í samfélaginu,“ segir Eyþór. Leik- og grunnskólinn á Hofsósi hafa samnýtt húsnæði undanfarin ár, sem er hvorki með mötuneyti né íþróttahúsi. 55 börn voru í grunnskólanum síðasta vetur og 20 börn í leikskólanum.