Lögreglan í Nedre Romerike í Noregi hefur nú nýjan mann grunaðan um aðild að einu voveiflegasta mannshvarfi þessarar aldar þar í landinu sem er hið sporlausa hvarf Anne Elisabeth Hagen, eiginkonu milljarðamæringsins og verkfræðingsins Tom Hagen, af heimili þeirra í Lørenskog að morgni 31. október 2018.
Óhætt er að segja að hvorki hafi gengið né rekið við rannsókn lögreglu nú þegar styttist í að áratugur verði liðinn frá hvarfinu en ýmsir hafa verið grunaðir gegnum árin, þar á meðal eiginmaðurinn sjálfur sem lögregla handtók í apríl 2020 og sat rúma viku í gæsluvarðhaldi.
Raunar stóð til að handtaka Hagen á ný, skömmu eftir að honum var sleppt lausum, en þá steig Kirsti Guttormsen, héraðssaksóknari í Ósló, fram og bannaði lögreglu að handtaka hann.
„Það er mikilvæg meginregla að ákæruvaldið [lögreglan í þessu tilfelli] hlíti úrskurðum dómstóla. Í þessu tilfelli, miðað við kringumstæður, taldi ég engar forsendur fyrir að handtaka hann aftur um leið og hann var látinn laus,“ sagði Guttormsen við norska ríkisútvarpið NRK 9. maí 2020 og þar við sat.
Eitthvað fannst hjá þeim sem nú er grunaður
Féll lögregla þó ekki frá grunsemdum sínum í garð Hagen fyrr en árið 2024 þegar hann var endanlega leystur undan grun og sömu leið fóru allir aðrir sem grunur hefur fallið á en þar bar hæst „rafmyntamanninn“ svokallaða eða „kryptomannen“ sem ekkert tókst að sanna á.
Sá, sem nú er grunaður um að hafa staðið á bak við hvarf Anne Elisabeth, er norskur ríkisborgari og var handtekinn eftir að lögregla fann eitthvað við leit hjá honum. Þetta staðfestir Guro Holm Hansen ákæruvaldsfulltrúi lögreglu við NRK en vill ekki tjá sig um hvað það var sem lögregla fann.
Segir hún lögreglu þó ekki hafa tekið frekari réttarfarsleg skref í málinu, maðurinn hafi sem sagt ekki verið handtekinn, lögregla aðeins lagt hald á það sem hún fann og muni nú framkvæma frekari rannsóknir í tengslum við það.