270 nýnemar í Menntaskólanum í Reykjavík tóku á flug í dag þegar elstu nemendur skólans buðu þá velkomna á hefðbundinn hátt með svokallaðri tolleringu.
Hefðin á sér yfir hundrað ára sögu við skólann og er táknræn athöfn til að bjóða nýnema velkomna í hóp hinna lærðu - með því að kasta þeim hátt upp í loft, grípa þá og hefja upp á ný. Tolleringin virðist hafa farið vel fram í ár, þrátt fyrir talsverða bleytu - og fengu flestir mjúka lendingu.
Fréttastofa ræddi við nemendur í MR í dag.