Andy Burnham, nýskipaður forsætisráðherra Bretlands, hefur boðað víðtækar breytingar á bresku samfélagi. Í ræðu sinni boðaði hann tíu ára áætlun, þar sem hann hygðist umbylta hvoru tveggja breskum stjórnmálum og breskum efnahag. Í gær tilkynnti hann um breytingar í ríkisstjórninni og þar eru bæði ný og kunnugleg nöfn.
John Healey verður fjármálaráðherra en hann sagði af sér sem varnarmálaráðherra fyrir tveimur mánuðum og gagnrýndi Keir Starmer þáverandi forsætisráðherra og Rachel Reeves fjármálaráðherra fyrir að tryggja ekki næga fjárveitingu til að byggja upp breska herinn.
Ed Milliband verður utanríkisráðherra en hann var áður orkumálaráðherra.
Angela Rayner snýr aftur í embætti ráðherra húsnæðismála en hún sagði af sér ráðherraembætti og einnig sem varaformaður Verkamannaflokksins í september á síðasta ári þegar upp komst að hún hefði greitt of lága skatta af íbúð í Austur-Sussex.
Shabana Mahmood verður áfram innanríkisráðherra.
Wes Streeting verður varnarmálaráðherra. Streeting sagði af sér embætti heilbrigðisráðherra í maí þegar hann lýsti því yfir að hann styddi ekki lengur Starmer sem forsætisráðherra.
Yvetta Cooper verður heilbrigðisráðherra en hún var utanríkisráðherra í ríkisstjórn Starmers.
David Lammy sagði af sér en hann var aðstoðarforsætisráðherra.
Breska ríkisútvarpið tók saman yfirlit yfir mannabreytingarnar í ríkisstjórn Burhams. Aðrir helstu ráðherrar í ríkisstjórn Burnhams eru:
- Louise Haigh, kanslari Lancaster-hertogadæmis
- Lucy Powell, menntamálaráðherra
- Pat McFadden, ráðherra atvinnu- og ellilífeyrismála
- Jonathan Reynolds, viðskiptaráðherra
- Bridget Phillipson, jafnréttismálaráðherra
- Lisa Nandy, menningarmálaráðherra
- Miatta Fahnbulleh, orkumálaráðherra
- Alex Norris, dómsmálaráðherra
- Heidi Alexander, samgönguráðherra
- Angela Eagle, umhverfisráðherra
- Sir Chris Bryant, ráðherra Norður-Írlands
Burnham er sjötti forsætisráðherra Breta á síðustu tíu árum og sá sjöundi síðan Bretland yfirgaf Evrópusambandið.