Nýjar upplýsingar hafa komið fram við rannsókn á flugslysinu í Flórída á sunnudag, þar sem níu manns fórust þegar Learjet 60-einkaþota steyptist til jarðar.Hlutar úr stélbúnaði vélarinnar hafa fundist í um sex kílómetra fjarlægð frá slysstaðnum, sem staðfestir að þotan var farin að brotna í sundur áður en hún skall til jarðar.Tom Chapman, fulltrúi bandarísku samgönguöryggisnefndarinnar (NTSB), greindi frá þessu á blaðamannafundi í gær, að því er AP-fréttastofan greinir frá.
Ný vísbending í flugslysinu í Flórída – Hvað gerðist síðustu sekúndurnar?