Fyrsti borgarstjórnarfundur nýs meirihluta í Reykjavík hófst klukkan tólf á hádegi.
Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, hefur tekið við sem forseti borgarstjórnar og Einar Þorsteinsson er formaður borgarráðs.
Hildur Björnsdóttir er formlega orðin borgarstjóri en Heiða Björg Hilmisdóttir afhendir henni lyklana klukkan hálf tvö.
Ætlar að skála að loknum fundi
„Við erum að kynna núna fyrstu málin sem koma til afgreiðslu hér á þessum borgarstjórnarfundi,“ sagði nýr borgarstjóri við fréttastofu þegar hún gekk inn á fundinn. Málin lúta að samgöngumálum, leikskólamálum og tiltekt í borgarkerfinu.
„Og svo málum sem allir flokkar voru sammála um eins og að lengja opnunartíma sundlauga. Svo það er eitt og annað,“ segir Hildur sem bætir við að ný borgarstjórn ætli að skála að fundi loknum.
Vonast eftir meiri sátt
Einar Þorsteinsson sagði við fréttastofu að nýr meirihluti byrjaði af krafti á fyrsta fundi.
„Við erum með margar stórar tillögur og skýr skilaboð um það að við viljum að borgarbúar viti að við borgarfulltrúar ætlum ekki að eyða tímanum í þras um utanríkismál.“ Þess í stað verði tíma varið í að bæta þjónustu. „Nú blása vindar breytingar um sali Ráðhússins,“ segir hann.
Ykkur hefur orðið tíðrætt um breytt vinnubrögð í borgarstjórn. Sjáið þið fram á að það muni ríkja meiri sátt og samlyndi milli meiri- og minnihluta?
„Vonandi, það eru margir nýir hérna inni. Þeir sem fóru eru kannski markaðir af átökum fyrri ára og kjörtímabila. Endurnýjun fylgir tækifæri til að breyta vinnubrögðunum,“ segir Einar.
32 mál á dagskrá
Á dagskrá fundarins eru 32 mál. Þar eru meðal annars endurskoðun samgöngusáttmálans, samstarf við atvinnulífið um leikskólarekstur og breytingar á fánareglum við stjórnsýsluhús borgarinnar á dagskrá.
Meirihlutinn opnaði í hádeginu vefsíðuna verkefnalisti.is þar sem stefnumál hans eru útfærð og tímasett. Meðal verkefna eru til dæmis að afnema reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar og að falla frá fyrirhugaðri þéttingu í Grafarvogi.