Ný bók eftir danska barnabókahöfundinn Ole Lund Kirkegaard kemur út síðar í þessum mánuði, heilum 47 árum eftir dauða hans.
Kirkegaard var mjög vinsæll höfundur á áttunda áratug síðustu aldar og fjölmargar bækur hans voru þýddar yfir á íslensku. Meðal þekktustu bókanna eru Ottó nashyrningur, Gúmmí-Tarsan og Fúsi froskagleypir. Alls gaf hann út 13 bækur.
Ný bók eftir hann kemur út hjá Gyldendal síðar í mánuðinum sem kallast Kalli og Skipper skipstjóri. Kirkegaard lést árið 1979 aðeins 39 ára að aldri en skildi eftir sig nokkur handrit. Þar á meðal var þessi bók. Handritið fannst fyrir 35 árum og dóttir Ole, Nana Bang Kirkegaard, tók að sér að fullbúa það til útgáfu.
Sagan fjallar um drenginn Kalla sem býr í litlu sjávarþorpi. Hann dreymir um að sigla um heimsins höf. Þegar Skipper skipstjóri leggst að bryggju í höfninni á bæ Kalla á skipinu Esmeralda laumast Kalli um borð og þar með er nýtt ævintýri hafið.
Bókin kemur út á þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní. Og þá er að sjá hvort hún verði þýdd á íslensku eins og margar aðrar af hans bókum.