Danska lyfjafyrirtækið Novo Nordisk höfðar mál gegn lyfjafyrirtækinu Eli Lilly. Novo Nordisk heldur því fram að auglýsingar Eli Lilly fyrir þyngdarstjórnunar- og sykursýkislyf séu hannaðar til að villa fyrir neytendum og telja þeim trú um yfirburðavirkni lyfjanna í samanburði við samkeppnislyf Novo Nordisk.
Novo Nordisk gerir sérstaklega athugasemdir við auglýsingar sem vitna í það sem fyrirtækið kallar „úreltar“ klínískar rannsóknir sem bera saman hæstu skammta af lyfjum Eli Lilly við lægri skammta af lyfjum Novo Nordisk.
Danska fyrirtækið heldur því fram að auglýsingarnar taki ekki tillit til nýlegrar háskammtaútgáfu af þyngdarstjórnunarlyfi sínu Wegovy sem kom á markað í mars og á að skila þyngdartapi sem er sambærilegra lyfjum Eli Lilly.
Eli Lilly neitar að leiðrétta auglýsingarnar
„Þessi aðgerð er tekin í kjölfar þess að Lilly neitar að taka niður eða leiðrétta tilteknar auglýsingar með marktækum hætti, þrátt fyrir formlega kröfu frá Novo Nordisk,“ segir á síðu fyrirtækisins.
Lögsóknin er lögð fram í héraðsdómi New Jersey-umdæmis í Bandaríkjunum. Novo Nordisk fer fram á að Eli Lilly hætti varanlega að birta auglýsingarnar og kefst þess að lyfjaframleiðandinn gefi út leiðréttandi auglýsingar.
Novo Nordisk krefst einnig fjárhagslegra skaðabóta en ekki er vitað hversu háa upphæð fyrirtækið biður um. Fyrirtækið segist einnig hafa varað Eli Lilly við því að ef auglýsingarnar yrðu ekki fjarlægðar hygðist það sækjast eftir lögbanni til bráðabirgða á næstu dögum til að stöðva þær tafarlaust á meðan málið er rekið.