Borgaryfirvöld í Liverpool og lögregluyfirvöld þar eru byrjuð að nota klassíska tónlist til þess að fæla í burt götugengi og vandræðaunglinga. Klassískir tónlistarmenn mótmæla þessum aðferðum og segja hana ýta undir staðalímyndir.
Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá þessu.
Liverpool borg hefur frekar verið þekkt fyrir Bítlarokk en klassíska tónlist hingað til en nú eru borgaryfirvöld þar, í samvinnu við lögregluna, byrjuð að nota klassíska tónlist sem eins konar fælu.
Það er að klassísk tónlist er spiluð í hátölurum á ljósastaurum víða í Whitechapel hverfinu. Telur lögreglan að þetta sé góð leið til þess að koma í veg fyrir starfsemi gengja og aðra andfélagslega starfsemi unglinga og ungmenna.
Ýti undir staðalímyndir
Klassískir tónlistarmenn í borginni hafa hins vegar brugðist illa við því að tónlistin sé notuð sem „vopn“ í baráttu við glæpi. Þá sé einnig verið að ýta undir staðalímyndir um að ungt fólk og fátækir hlusti ekki á klassíska tónlist heldur aðeins gamalt og ríkt fólk.
„Sem klassískur tónlistarmaður með verkamannabakgrunn gerir þetta mig mjög reiða,“ segir Laura Macmillan, fiðluleikari. „Það var látið eins og ég væri ekki nógu góð til þess að spila svona tónlist. Sú staðalímynd lifir að klassísk tónlist sé fyrir fólk sem á mikla peninga og að hún sé of flókin fyrir sumt fólk, að nota hana sem vopn af þessu tagi er hræðilegt.“
Bætti hún þó við að hægt væri að nota annars konar tónlist til að hrekja unglinga í burtu.
„Ef þú vilt losna við hópa af ungu fólki þá ættir þú að spila eitthvað úr K-Pop Demon Hunters kvikmyndinni, því enginn yfir sjö ára aldri vill heyra lagið Golden aftur.“