Evrópusambandið hefur áhyggjur af því að samstarf Norðmanna og Rússa í fiskveiðum í Barentshafi skerði öryggi Evrópu. Veiðarnar eru lífæð margra sjávarþorpa í Noregi, þar á meðal Båtsfjord. Rússar eru grunaðir um að nýta þetta samstarf til njósna.
Mörg sjávarþorp í Norður-Noregi byggja afkomu sína á þorskveiðum í Barentshafi. Hvergi er meira af þorski í heiminum en þar og Norðmenn og Rússar hafa starfað saman við stjórn fiskveiða þar í yfir 50 ár. En þarna eru líka mikilvægir innviðir, eins og sæstrengir fyrir fjarskipti.
Sérfræðingar segja að Rússar nýti sér það ásamt ýmsu öðru til að kortleggja veikleikana í Evrópu. Evrópusambandið hefur töluverðar áhyggjur af þessu, einkum þar sem rússnesk skip hafa áfram fengið að landa í norskum höfnum.