Sprengjuhótanir hafa síðustu daga borist til nokkurra flugfélaga í Evrópu. Yfirvöld í Póllandi hafa í dag fengið tvær hótanir. Önnur var um sprengju í vél SAS á leið frá Kaupmannahöfn til Varsjár og hin um sprengju í vél LOT á leið frá Heathrow í London til Varsjár. Báðum vélum var lent í Varsjá og engin sprengiefni fundust um borð í þeim.
Upphaflega átti að lenda vélunum á Chopin-flugvelli í Varsjá. Vél LOT var þó beint að Modlin-flugvelli í borginni. Honum var lokað fyrir annarri umferð á meðan vélinni var lent og hefur hann verið opnaður á ný.
Í dag barst einnig hótun um sprengju í flugvél Ryanair á leið frá Manchester á Englandi á leið til Murcia á Spáni. Eins barst sprengjuhótun vegna vélar á leið frá Ísrael til Sofíu í Búlgaríu. Í gær var vél Wizz Air á leið frá London til Sofíu lent í Ungverjalandi vegna sprengjuhótunar. Þá barst á sunnudag hótun um sprengju í vél á leið frá Tel Aviv til Vínar. Henni var lent í Búlgaríu.
Yfirvöld í ríkjunum þar sem vélarnar áttu að lenda hafa ekki gefið upp hvort vitað sé hver beri ábyrgð á hótununum. Þá hefur ekki verið gefið upp hvort málin tengist.