Bandaríski Óskarsverðlaunaleikarinn Nicolas Cage hefur breytt nafni sínu með lögformlegum hætti, nýtt nafn er Nicolas Cage.
Leikarinn sem var skírður Nicolas Kim Coppola greindi frá því að hann hefði breytt nafni sínu löglega í fyrra og gengur nú opinberlega undir nafninu Nicolas Cage bæði í einkalífi sínu og starfi vegna þess að hann vildi ekki vera „trúðafrændi“ hinnar frægu Coppola-fjölskyldu.
„Ég heiti Nick Cage. Ég breytti nafninu mínu löglega í fyrra,“ sagði leikarinn við Variety . „Ég er Nick Cage í hverdagslífinu og ég er Nick Cage fyrir framan myndavélarnar.“
„Það er betra að vera ættfaðir minnar eigin litlu fjölskyldu heldur en trúðafrændi á jaðri einhvers annars, svo ég ákvað að ég ætla að taka þetta að mér og vera Cage.“
Cage, sem er 62 ára, hefur notað nafnið í atvinnuskyni í áratugi en sagði að hann hefði byrjað snemma á ferlinum að fjarlægja sig frá hinni frægu ítölsk-amerísku Coppola-fjölskyldu.
Leikarinn er sonur fræðimannsins og rithöfundarins August Coppola og frændi hins goðsagnakennda kvikmyndagerðarmanns Francis Ford Coppola og leikkonunnar Taliu Shire. Meðal frænda hans eru kvikmyndagerðarmaðurinn Sofia Coppola og leikarinn Jason Schwartzman.
Leikarinn sagði að hann hefði valið Cage að hluta til vegna persónunnar Luke Cage úr Marvel Comics, en einnig sótti hann innblástur frá framsækna tónskáldinu John Cage
„Cage er nafn sem mér líkaði þegar ég las teiknimyndasögur, mér fannst hann heita flottu nafni og ég ólst upp í mjög framsækinni og listrænni fjölskyldu og það var talað um John Cage og tilraunakenndu tónsmíðarnar sem hann gerði,“ sagði hann.
Hann viðurkenndi einnig að hann vildi nafn sem væri „stutt og sætt“ eins og James Dean.
„Ég hugsaði með mér að ég myndi halda nafninu Nicolas því pabbi minn nefndi mig Nicolas, með franskri stafsetningu, sem hefur alltaf pirrað mig, því allir bæta við h. Ég veit ekki af hverju hann gaf mér frönsku stafsetninguna.“
Aðspurður um hvort hann kjósi að vera kallaður Nick eða Nicolas segist hann það ekki skipta máli þar sem fólk þekki hann undir báðum nöfnum.
Cage hefur verið þekktur sem Nicolas Cage nánast allan sinn feril, fyrir utan sjónvarpsþáttaröð frá árinu 1981 og kvikmyndina Fast Times at Ridgemont High frá árinu 1982.