Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur fyrirskipað útgöngubann á Vesturbakkanum eftir ásakanir um að tveir Palestínumenn hafi sært fimm Ísraela þar í morgun. Ísraelsher segir í færslu á X að Palestínumennirnir tveir hafi verið drepnir. Samkvæmt palestínska fréttamiðlinum Wafa voru þeir ungir að árum.
Netanyahu sagði herinn hafa komið í veg fyrir árás sem hefði valdið fleirum skaða. AFP-fréttaveitan hefur eftir fréttamanni sínum á Vesturbakkanum að hann hafi séð Palestínumennina með skammbyssu og sjálfvirkan riffil.
Þingkosningar verða í Ísrael á þriðjudag. Netanyahu hefur frestað öllum kosningafundum Likud-flokksins í dag vegna árásarinnar.
Ráðherra þjóðaröryggismála, Itamar Ben Gvir, hefur krafist þess að palestínsk stjórnvöld á Vesturbakkanum verði lögð niður vegna árásarinnar í morgun. Þá krefst hann þess að stjórnvöld verði afvopnuð. Engar sannanir hafa þó verið lagðar fram fyrir því að palestínsk stjórnvöld hafi komið nokkuð nærri árásinni í morgun.
Aukin spenna hefur verið á Vesturbakkanum síðustu mánuði vegna árása landtökumanna á ólífubændur. Samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum Palestínu hafa 1.113 Palestínumenn verið drepnir á Vesturbakkanum síðan í október 2023. Samkvæmt ísraelskum stjórnvöldum hafa 49 Ísraelar, hið minnsta, bæði almennir borgarar og hermenn, verið drepnir á Vesturbakkanum á sama tímabili.