Unglingadrykkja er að aukast, segir Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla. Það megi sjá í gögnum en þar að auki hafi starfsfólk sem starfar með börnum varað við þróuninni á undanförnum árum. „Þannig að við erum tvímælalaust að sjá aukningu.“
Dæmi eru um að ólögráða ungmenni geti keypt og sótt áfengi hjá netverslunum án þess að vera spurð um skilríki.
Fréttastofa ræddi við móður 17 ára drengs sem segir að sonur hennar og vinir nýti netverslanir óspart. Ungmennin hafi fengið tvítugan strák til að stofna aðgang hjá Smáríkinu. Þau nýti sér svo aðganginn til að kaupa áfengi og greiða fyrir með sínum greiðslukortum. Þegar konan skoðaði kortafærslur sonar síns sá hún að kortið hefði verið notað 18 sinnum á tveggja mánaða tímabili til að greiða fyrir áfengi á netinu, fyrir nærri 150 þúsund krónur.
„Aðgengið hefur náttúrlega aukist gríðarlega,“ segir Sigurður. Hann veltir fyrir sér hver ábyrgð smásala sé. „Börn eiga ekki að komast í áfengi og við foreldrar þurfum að treysta því að þessar verslanir komi í veg fyrir að börn komist í þetta svona auðveldlega.“
Sigurður segir að bregðast þurfi við þróuninni. „Við þurfum nýtt landsátak, koma okkur saman um þetta og ákveða að það er ekki í lagi að börn drekki áfengi. Það er ákvörðun sem við öll þurfum að taka og vinna saman að ná þeim markmiðum.“
Dæmin sýni að þetta sé hægt. Tekist hafi að draga úr unglingadrykkju í upphafi aldarinnar.
„Þá þurftum við að koma öll saman og ná þessum árangri, sérstaklega foreldrar,“ segir Sigurður. Hann bendir á að niðurskurður hafi orðið í forvarnarmálum og að foreldrar standi svolítið einir í baráttunni. Mikilvægt sé fyrir foreldra að fylgjast með og ræða við unglingana, en ekki yfirheyra þá. „Samvera er besta forvörnin.“