Þýska lögreglan rannsakar mál þar sem nálar, málmskrúfur og aðrir hvassir hlutir fundust í sælgæti sem börn söfnuðu á hrekkjavökunni. Deutsche Welle greinir frá.
Tilkynningar bárust frá nokkrum héröðum í Þýskalandi, þar á meðal frá Þýringalandi, Baden-Württemberg, Bæjaralandi, Neðra-Saxlandi og Rínarlandi-Pfalz.
Í einu tilfelli í Nürnberg beit barn í falda nál en varð ekki meint af. Þá er greint frá að minnsta kosti tveimur tilvikum þar sem nálar voru vandlega faldar svo ekki væri hægt að koma auga á þær.
Lögreglan telur þetta vera viljaverk og að málmhlutirnir hafi verið settir í sælgætið til að valda skaða. Mörg tilfellanna eru rannsökuð sem tilraun til alvarlegrar líkamsárásar. Enginn er grunaður að svo stöddu.
Nál í sælgæti á Íslandi reyndist hrekkur
Í gær tilkynnti Lögreglan á Norðurlandi eystra að nálar hefðu fundist í súkkulaði sem börn höfðu viðað að sér á hrekkjavökunni á Akureyri. Voru foreldrar beðnir um að gaumgæfa sælgæti barnanna sinna.
Síðar var aðvörunin afturkölluð og tekið fram að atvikið hefði reynst vera „hrekkur í lokuðum hóp“.