Maðurinn sem lést í fangelsinu á Hólmsheiði í gær hét Sigurður Fannar Þórsson.
Þetta herma heimildir mbl.is.
Sigurður sat inni við afplánun sextán ára fangelsisdóms fyrir að hafa banað tíu ára dóttur sinni að Hraunhólum við Krýsuvík árið 2024.
Við aðalmeðferð málsins játaði Sigurður verknaðinn en bar fyrir sig minnisleysi að einhverju leyti.
Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á: Píeta-samtökin, s. 552-2218, Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið 1717.is, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is. Í neyð hringið í 112. Varðandi stuðning eftir missi í sjálfsvígi er bent á Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is, Sorgarmiðstöð, s. 551-4141, og sorgarmidstod@sorgarmidstod.is, síma Píeta samtakanna, 552-2218. Í neyð hringið í 112.