Nærri 500 ebólusmit hafa verið staðfest í faraldri sem gengur yfir í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir í daglegu yfirliti að staðfest séu 452 smit, þar af 82 dauðsföll.
19 smit hafa greinst í nágrannaríkinu Úganda og tveir hafa látist þar. Alls hafa því 471 smit verið staðfest og 84 látist. Smitum fjölgaði um 100 milli daga og stofnunin varar við því að faraldurinn geti orðið sá stærsti til þessa.
Jason Asher, forstöðumaður spá- og faraldursfræði hjá Sóttvarnarstofnun Bandaríkjanna, sagði á fundi með fjölmiðlum í gær að líkön bentu til þess að án öflugrar íhlutunar heilbrigðisyfirvalda gæti faraldurinn orðið álíka stór og sá sem reið yfir Vestur-Afríku 2014. Þar komu upp tæplega 30 þúsund tilfelli og yfir 11 þúsund létust. „Það er möguleiki að faraldurinn verði svo umfangsmikill.“
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin lýsti yfir neyðarástandi í vor vegna faraldursins. Tedros Ghebreyesus, forstjóri stofnunarinnar, sagði við fjölmiðla að faraldurinn breiddist hratt út og heilbrigðisyfirvöld væru enn að elta hann.
„Við þurfum að stöðva faraldurinn, styðja löndin sem berjast við hann og tryggja að nágrannaríki séu tilbúin til að greina sjúkdóminn og bregðast fljótt við ef smit koma upp. Þetta er alvarlegur faraldur og við vitum hvernig við getum stöðvað hann en þurfum að bregðast hratt við og vinna í sameiningu.“