Endurbætur á gömlu náðhúsunum undir kirkjutröppunum við Akureyrarkirkju standa nú yfir en fyrirhugað er að þar rísi nýtt verslunar- og þjónusturými.
Frá þessu er greint á Facebook-síðu fasteignafélagsins Heima.
Heimar eru eigendur náðhúsanna en þeir festu kaup á þeim árið 2022. Hluti af kaupsamkomulaginu var að Heimar myndu þá ráðast í endurbætur á kirkjutröppunum fyrir ofan húsin, en þeim lauk í desember árið 2024.
Framkvæmdir á húsunum hófust í júní og búist er við að framkvæmdum ljúki síðar á þessu ári.