Senegal er eitt af liðunum sem undirbýr sig nú fyrir keppni á heimsmeistaramóti karla í fótbolta sem hefst eftir tíu daga en myndskeið af æfingu liðsins hefur vakið athygli í aðdraganda mótsins.
Í myndskeiði sem fór á flug á samfélagsmiðlum sáust leikmenn liðsins athuga hversu vel boltinn myndi skoppa á æfingavelli liðsins.
Boltanum var kastað hátt upp í loftið og þegar boltinn skoppaði fór hann ekki einu sinni yfir mittishæð eins og sést á myndskeiðinu hér að neðan.
Æfing liðsins fór fram í Charlotte í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum þar sem Senegal lék vináttulandsleik gegn Bandaríkjunum. Þótt leikurinn hafi verið hluti af undirbúningi liðsins fyrir heimsmeistarakeppnina er ekki spilað á vellinum á HM.
Því endurspeglar myndskeiðið ekki endilega þær aðstæður sem liðin munu glíma við á meðan á keppninni stendur.
Enn sem komið er eru engar vísbendingar um að vandamál séu til staðar á þeim leikvöllum sem verða notaðir á heimsmeistaramótinu.
Þetta sýnir hins vegar hversu fljótt hvert smáatriði sem tengist vallaraðstæðum eða öðrum atriðum getur orðið að umræðuefni þegar stærsta knattspyrnumót heims er handan við hornið.