Como-vatn á Ítalíu er þekkt fyrir að vera svæði þar sem fræga fólkið gerir vel við sig. Íslenska stjörnuparið Lína Birgitta Sigurðardóttir athafnakona og Guðmundur Birkir Pálmason kírópraktor skelltu sér til Como með vinapari sínu Guðríði Jónsdóttur snyrtifræðingi og Agli Einarssyni einkaþjálfara.
Ekki ódýrasti staðurinn á Ítalíu
Fólk sem hefur komið til Como og bæjanna í kringum vatnið veit að kaffibollinn og vínflaskan kostar meira en á mörgum öðrum stöðum á Ítalíu. Í sumum bæjum við vatnið þar sem mikið er um ferðamenn er rukkað sérstaklega fyrir tómatsósu með frönskunum, tekið skal fram að hér er ekki verið að tala um gamla góða McDonalds sem er auðvitað að finna við Como. Það þarf því að safna vel fyrir ferð til Como eða fara bara í aðeins styttri tíma en þegar mekka pítsunnar í Napólí er heimsótt.
Hvað kostar að gista á Hilton?
Það getur líka verið skynsamlegt að velja gistinguna vel. Þannig er hægt að gera góðan díl eins og sagt er. Jafnvel þó að að fólk sætti sig við að gista í Airbnb-íbúð og elda Barilla-pasta á kvöldin getur það reynst flókið að finna almennilega skammtímaleiguíbúð við vatnið.
Fjórmenningarnir Lína Birgitta, Gummi kíró, Guðríður snyrtifræðingur og Egill einkaþjálfari gerðu vel við sig í ferðinni. Lína Birgitta birti meðal annars myndir af sér frá Hilton-hótelinu við Como-vatnið en hótelið er með þeim flottari á svæðinu.
Blaðamaður gerði óformlega rannsókn hvað kostar að gista á Hilton-hótelinu ef fólk hefur hug á því að skella sér þangað í vikunni. Ódýrasta herbergið fyrir tvo kostar á bilinu 90 þúsund upp í 117 þúsund en það fer eftir því hvenær í vikunni gist er. Svo er líklega hægt að fá betra verð ef bókað er vel fram í tímann og á öðrum árstíma.

