Í 40 ár hafa Greifarnir verið hluti af íslenskri tónlistarsögu, órjúfanlegur hluti af sveitaböllum, sumrum og minningum sem lifa áfram.
Núna er komið að enn einum kaflanum hjá Greifunum en Síðasta sveitaballið, er sérstök tónleikaferð þar sem Greifarnir heimsækja valda staði víða um land og kveikja aftur á stemningunni sem margir vilja meina að sé horfin, en hún er það alls ekki.
Í gærkvöld voru Greifarnir á sveitaballi í Freyvangi í Eyjafirði og í kvöld stíga þeir á stokk í Skúlagarði í Kelduhverfi.

