Næstum tuttugu ábendingar og kvartanir hafa borist persónuvernd vegna símhringinga og skilaboða í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna síðastliðinn laugardag. Forstjóri Persónuverndar segir þær nær allar tengjast Áfram Ísland en á næstu dögum verður ákveðið hvort málin gefi tilefni til rannsókna.
Forstjóri ÞK Verks segir Reykjavíkurborg vera að vinda ofan af mistökum í skipulagsmálum en nýr meirihluti í Reykjavík hefur dregið úr skipulagskvöðum um stærð íbúða og atvinnurýmis.
Haldið er upp á Treyjudaginn svokallaða í dag. Framkvæmdastjóri styrktarfélagsins Börn með krabbamein segir fjölskyldur ánægðar með að málstaðurinn eigi nú sinn eigin dag.
Í íþróttum verður fjallað um Olís-deildina í handbolta sem hófst í gær og rætt við Braga Þórðarson sérfræðing í Formúlu 1 um keppni helgarinnar. Þá hefst þriðja umferð ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld þar sem Liverpool freistar þess að ná í sinn fyrsta sigur.
Þetta og meira til í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.