Sérsveit ríkislögreglustjóra handtók að minnsta kosti einn í aðgerð í Hveragerði á sjöunda tímanum í kvöld.
Á myndbandi sem mbl.is barst af vettvangi má sjá nokkra sérsveitarmenn gráa fyrir járnum skipa konu í bifreið að stíga út úr henni. Einnig sjást sérsveitarmennirnir leita í skotti bifreiðarinnar áður en þeir virðast handtaka konuna.
Ljóst er að um nokkuð umfangsmikla aðgerð er að ræða, en umferð um Þjóðveg 1 við Hveragerði virðist hafa stöðvast tímabundið vegna aðgerðanna, en ríkislögreglustjóri og lögreglan á Suðurlandi verjast allra fregna og vildu ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað.