Það féllu tár þegar síðasta útsendingin hófst á öllum stefum fréttanna í þau nærri fjörutíu ár sem kvöldfréttir voru sendar út.
Fjöldi fólks var viðstaddur, ekki einungis starfsmenn fréttastofunnar heldur einnig ljósmyndarar, blaðamenn og tökumenn annarra fréttastofa landsins. Stjórnendur fyrirtækisins létu sjá sig.
Kolbeinn Tumi Daðason ritstjóri las kvöldfréttirnar en lagði áherslu á að þetta væru ekki endalok fréttastofunnar.
„Þannig að við segjum ekki bless. Við segjum takk,“ sagði hann.
„Takk fyrir þessi fjörutíu ár í sjónvarpinu. Takk fyrir að horfa. Og takk fyrir að leyfa okkur að standa vaktina fyrir ykkur.“