Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðsstjóri og oddviti Jafnaðarmanna, segir í samtali við fréttastofu að nýr meirihluti hafi ákveðið að auglýsa eftir nýjum bæjarstjóra.
Þórir Hákonarson, skrifstofustjóri sem gegnt hefur stöðu bæjarstjóra síðasta rúma árið, mun áfram gegna skyldum bæjarstjóra þar til að nýr hefur verið ráðinn.
S-listinn og H-listinn náðu báðir tveimur mönnum inn í bæjarstjórn, en Sjálfstæðismenn þremur.
Á fundinum í gær var ákveðið að Jóhann K. yrði forseti bæjarstjórnar og Helgi Jóhannsson, formaður bæjarráðs.
Í Fjallabyggð er meðal annars að finna Siglufjörð og Ólafsfjörð.
Bæjarfulltrúar eru eftirfarandi:
- Tómas Atli Einarsson (D)
- Kristín Ágústa Eiðarsdóttir (D)
- Guðrún Sif Guðbrandsdóttir (D)
- Helgi Jóhannsson (H)
- Kristinn Kristjánsson (H)
- Jóhann K. Jóhannsson (S)
- Pálmi Blængsson (S)