Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra mun ekki fyrirskipa lögreglu að aðhafast sérstaklega vegna netverslana með áfengi.
Þetta segir ráðherrann í samtali við mbl.is.
Fyrr á árinu féll héraðsdómur þar sem Vilhjálmur Forberg Ólafsson, forsvarsmaður Smáríkisins, var sakfelldur fyrir sölu á einni hvítvínsbelju. Dómnum hefur verið áfrýjað til Landsréttar en lögregla hefur sætt gagnrýni fyrir það að ráðast ekki í aðgerðir á grundvelli dómsins, sem hægt er að túlka sem svo að netverslun sem þessi sé ólögmæt.
Afstaða lögreglu ljós
Nú eru starfandi á þriðja tug netverslana með áfengi hér á landi og fer þeim aðeins fjölgandi þrátt fyrir óvissu varðandi lögmæti fyrirkomulagsins.
Er það þín skoðun að lögreglan ætti að aðhafast sérstaklega vegna dómsins eða hvernig sérðu þetta fyrir þér?
„Ég held að afstaða lögreglu liggi ljós fyrir. Lögregla gaf út ákæru og í því felst afstaða lögreglunnar að þarna sé um refsiverða háttsemi að ræða. Lögregla verður auðvitað sjálf að svara fyrir sínar aðgerðir eða aðgerðaleysi. Mér finnst alveg ástæða til að nefna að endanlegur dómur í þessu máli er ekki fallinn. Málið er á leið fyrir Landsrétt og það er fyrst með þeim dómi sem að endanleg staða málsins verður ljós,“ svarar dómsmálaráðherra.
Vill ekki búa í þannig landi
Umdeilt er hvort æskilegt sé að lögregluyfirvöld byggi á áfrýjuðum héraðsdómi þegar atvinnufrelsi borgara landsins er skert. Var ráðherra því spurður hvort slíkt væri yfirhöfuð heimilt.
„Afstaða lögreglu liggur fyrir og ákæruvaldið gefur ekki út ákæru nema að meiri líkur en minni séu á sakfellingu. Mér finnst þó ekkert óeðlilegt að það sé smá biðtími núna á meðan beðið er eftir endanlegum dómi,“ segir Þorbjörg.
Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði í viðtali við Vísi fyrr í vikunni að óskiljanlegt væri að netsala þenjist út eftir að héraðsdómurinn sé fallinn. Virtist hann þar kalla á eftir því að ríkisstjórnin beitti sér fyrir því að netsala yrði stöðvuð. Þorbjörg segist ekki vilja búa í landi þar sem ráðherra gefi lögreglu skipanir um að fara í aðgerðir.
„Ég mun ekki gefa lögreglunni neinar skipanir í þá veru,“ segir ráðherrann.
Breytingar á löggjöf liggja ekki í loftinu
Þingmenn Viðreisnar lögðu fram frumvarp á síðasta þingi sem fól í sér að netsala áfengis yrði heimiluð. Frumvarpið náði ekki fram að ganga og ríkisstjórnin hefur ekki gefið út að áform séu um að heimila netsölu áfengis sérstaklega með lögum.
„Við í Viðreisn erum frjálslyndismegin í þessu málið og ég er það sjálf. Mér þætti ekkert óeðlilegt við það að hér væri regluverk sem að næði þó að setja einhvern ramma utan um þessa sölu. Ég veit að þetta er mál sem fólk hefur sterkar skoðanir á. Við sáum til dæmis bara hjá síðustu ríkisstjórn að þarna var alltaf uppi ágreiningur í þessum málum sem skilaði því að regluverkið breyttist ekki,“ segir Þorbjörg.
Þorbjörg segir málið ekki hafa verið tekið sérstaklega til umfjöllunar á vettvangi ríkisstjórnarinnar. Eins og sakir standa liggi breytingar á löggjöfinni ekkert sérstaklega í loftinu.