Mótorhjólaslys varð á Hafnarfjarðarvegi við Kópavogstjörn í kvöld. Einn var fluttur á slysadeild.
Stefán Már Kristinsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu, segir þann slasaða hafa verið með meðvitund. Hann geti ekki sagt til um alvarleika slyssins að svo stöddu.