Nýkeypt mótorhjól Ómars Geirssonar brann til kaldra kola á Hámundstaðarhálsi á leið heim frá Akureyri eftir að hann varð var við bilun og stöðvaði það við vegkantinn.
Ómar hafði aðeins átt Honda Goldwing, árgerð 1988, í sex daga þegar óhappið varð fyrr í dag.
Hann hafði ekið með hjólið frá Siglufirði til Akureyrar í ástandsskoðun fyrr um daginn og segir að það hafi staðist skoðun án athugasemda.
Frá þessu greindi hann frá á Facebook-síðu sinni. Greint var frá atvikinu á vef Tíunnar.
„Ég hefði fengið sekt ef ég hefði farið með það eftir 1. ágúst, þannig að ég fór með það í skoðun núna,“ segir Ómar í samtali við fréttastofu.
Fann að hjólið var orðið þungt í akstri
Á heimleiðinni varð Ómar var við bilun í hjólinu og ákvað að stöðva farartækið á veginum til að athuga hvað væri að. „Ég fann að hjólið var orðið þungt í akstri og ákvað að stoppa strax,“ segir hann.
Ómar stöðvaði því hjólið við Hámundarstaðarháls, aðeins úti í vegkanti. Eftir að hafa drepið á hjólinu tók hann hjálminn af sér og hringdi í kunningja í Ólafsfirði til að fá aðstoð, þar sem hann var ekki með verkfæri með sér.
„Það er lítið hægt að gera þegar maður er ekki með nein verkfæri. Ég hringdi í félaga sem ætlaði að koma með þau.“ Á meðan hann var í símanum braust út eldur í hjólinu.
Eldurinn breiddist hratt út og á skömmum tíma var hjólið alelda. Slökkvilið Dalvíkur var kallað á vettvang en þegar það kom var hjólið nánast brunnið til kaldra kola og gjöreyðilagt.
Ekki viss um orsök brunans
Ómar segist ekki vita með vissu hver orsök brunans voru en grunar að bilunin hafi tengst bremsum eða hugsanlega tjöru á veginum sem hafi haft áhrif á þær.
Ómar segir það hafa skipt hann miklu máli hversu margir hafi sýnt honum umhyggju á vettvangi. Hann er sjálfur ómeiddur.
„Það stoppaði ung kona, tók í höndina á mér og spurði hvort það væri örugglega í lagi með mig. Það þótti mér mjög vænt um.“
Að lokum hringdi Ómar í son sinn, sem vinnur á Dalvík, og bað hann að sækja sig. Hann sendi félaga á vettvang til að hreinsa upp járnaruslið, eða það sem eftir var af hjólinu.
Hjólið var af Honda Goldwing-gerðinni. Hann á einnig Goldwing-hjól af árgerð 2002 en segir eldra hjólið hafa verið ætlað sem svokallað sparihjól.
„Þetta átti bara að vera sparihjól sem ég keyrði kannski á sunnudögum.“