Mótmælin sem samtökin No borders standa fyrir hófust klukkan þrjú og ræðuhöld hefjast klukkan fjögur. Frumvarpið á að fara í þriðju umræðu á morgun.
Fréttamaður Vísis er á Austurvelli og segir mikil læti vera á svæðinu og að þingmenn kíki út um gluggann á Alþingishúsinu öðru hvoru. Lögregla stendur vörð um húsið.
Meðal ræðumanna mótmælanna eru fulltrúar W.O.M.E.N in Iceland (félag kvenna af erlendum uppruna) og Amnesty International. Á síðustu dögum hafa samtök og stofnanir gefið út yfirlýsingar þar sem þau leggjast gegn frumvarpinu, einkum fyrirhugaðri vistun barna.
Fréttin er í vinnslu.