Þúsundir komu saman í Kyiv í gærkvöld og mótmæltu brottvikningu varnarmálaráðherrans Mykhailo Fedorov úr embætti. Þetta var þriðja kvöldið í röð sem efnt er til fjölmennra mótmæla í landinu vegna uppstokkunar í ríkisstjórn í síðustu viku.
Mótmælendur krefjast þess að hætt verði við að vísa Fedorov úr embætti varnarmálaráðherra. Hann hefur notið mikilla vinsælda og margir sem þakka honum betra gengi í stríðinu við Rússa með langdrægum árásum á olíuinnviði. Þá hefur hann barist gegn spillingu í hernum og samdi um aðgang úkraínskra hermanna að Starlink-gervihnattakerfinu.
Samband Fedarovs við hershöfðingja Úkraínu, Oleksandr Syrský, var stirt og er það talin ástæða þess að Zelensky vék honum úr ríkisstjórninni. Meðal krafna mótmælenda í gær var að Syrský yrði látinn fara. Ekki var aðeins mótmælt í Kyiv heldur líka í öðrum borgum, svo sem Lviv, Dnipró, Odesu og Vinnítsía.
Sjálfur sagði Fedorov í færslu á samfélagsmiðlum í gær að viðræður væru í gangi og að hann væri bjartsýnn. Þá sagði Zelensky í gær að mótmælendur hefðu náð eyrum hans. Hann hefði rætt við bæði Fedorov og Syrský. Verið væri að vinna í málunum.