„Undanfarið ár hef ég skrifað þingmannapistla á miðopnu Morgunblaðsins. Fyrir skemmstu var mér tilkynnt að þar yrði breyting á. Í dag birtist því síðasta grein mín af þessu tagi - og ljóst að ég mun finna skrifum mínum nýjan vettvang,“ segir Dagur B. Eggertsson.
Ljóst er, samkvæmt þessu, að umræðan um Evrópusambandið er að harðna. Morgunblaðið virðist ætla að sýna klærnar en Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, ritaði í nýlegum pistli að Morgunblaðið ásamt SFS og hlaðvarpstrúðum væru að afvegaleiða umræðuna.
„Nánast fyndið hefur verið að fylgjast með Morgunblaðinu, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og hlaðvarpstrúðunum sem hafa það hlutverk að gaslýsa fólk í þágu útgerða landsins reyna að afflytja innihald skýrslunnar. Greinilegt er að það stingur að verið sé að opinbera fáveldisáhrifin sem kvótakerfið hefur leitt af sér,“ skrifar Þórður Snær.
Dagur segir grein sína, sem hann birtir á Facebook-síðu sína fjalla um svipuð atriði, sem er villandi umræða um Evrópusambandið og auðlindir.