Móðir Vickrum Digwa, mannsins sem myrti hinn 18 ára gamla Henry Nowak, hefur verið dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir að aðstoða son sinn við að hylma yfir glæpinn með því að fjarlægja morðvopnið af vettvangi.
Kiran Kaur, 53 ára, var sakfelld fyrir að hafa tekið hnífinn sem sonur hennar, Vickrum Digwa, notaði til að myrða Henry í Southampton í desember á síðasta ári.
Digwa hefur þegar verið dæmdur í lífstíðarfangelsi og þarf að afplána að minnsta kosti 21 ár áður en hann getur sótt um reynslulausn.
Kaur var sakfelld 28. maí en á föstudag var hún dæmd í þriggja ára fangelsi.
Setti morðvopnið í svefnherbergi sonarins
Við uppkvaðningu dómsins sagði dómarinn að morðið hefði haft varanleg og hörmuleg áhrif á fjölskyldu Nowaks.
Hann sagði Digwa hafa skipað móður sinni að fjarlægja morðvopnið af vettvangi og að henni hefði verið ljóst að ekkert gæti réttlætt það að sonur hennar hefði stungið Henry.
„Ábyrgt foreldri hefði spurt son sinn út í gjörðir hans og hvatt hann til að gera það rétta. Þess í stað fórstu með hnífinn heim og settir hann með öðrum vopnum í svefnherbergi sonar þíns,“ sagði dómarinn.
Hnífurinn var stór kirpan, sem er trúarlegur og táknrænn hnífur meðal síka. Lögregla fann vopnið síðar á heimili fjölskyldunnar og staðfesti að um morðvopnið væri að ræða.
Dómarinn sagði að ábyrgt foreldri hefði aðstoðað lögreglu við að finna vopnið í stað þess að fjarlægja það af vettvangi.
Einn stór lygavefur
Saksóknari málsins sagði lögreglu hafa mætt vef lyga frá fjölskyldunni allri við rannsókn málsins og að Kaur hefði ákveðið að greina ekki frá því sem hún hafði gert.
Verjandi Kaur sagði hins vegar að um skyndilega og hvatvísa ákvörðun hefði verið að ræða. Hún hefði fengið símtal um að ráðist hefði verið á son hennar og komið á vettvang þar sem ríkt hefði ringulreið, ótti og mikill órói.
Hann sagði hana hafa brugðist við af löngun til að vernda barn sitt. Vopnið hefði hvorki verið eyðilagt, hreinsað né brotið.
Fjölskyldan ósátt við dóminn
Fjölskylda Henry sagði í yfirlýsingu eftir dómsuppkvaðninguna að hún samþykkti niðurstöðuna en væri engu að síður afar vonsvikin.
„Við munum aldrei gefast upp í baráttu okkar fyrir réttlæti fyrir Henry,“ sagði fjölskyldan.
Hún kvaðst áfram ætla að þrýsta á um að ekkert yrði látið ókannað við rannsókn málsins og að allur sannleikurinn um það sem gerðist í desember kæmi fram.
Henry var á leið heim af samkomu með vinum úr knattspyrnuliði sínu þegar Digwa stakk hann til bana 3. desember.
Dómi Digwa hefur verið vísað til áfrýjunardómstóls þar sem kannað verður hvort 21 árs lágmarksrefsing hans hafi verið óeðlilega væg.