Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum - Vísir
21.04.2026 07:06:25👁️ 0 lesið
Á vef Veðurstofunnar segir að í dag og fram á miðvikudagskvöld sé þó útlit fyrir strekking- eða allhvassan vind norðvestanlands og á Tröllaskaga, en hvassast verður á Ströndum.„Nú fyrir hádegi þykknar upp vestanlands og útlit er fyrir þokuloft þar fram eftir kvöldi, en annars verður bjartviðri í öðrum landshlutum fram á fimmtudag þegar tekur að þykkna upp sunnanlands. Hiti getur víða náð allt að 16 til 18 stigum að deginum.Á föstudag veldur háþrýstisvæði yfir N Grænlandi fremur hægum norðaustlægum áttum og þá gæti kólnar heldur norðan- og austanlands,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag: Suðvestan 10-18 m/s um landið norðvestanvert, annars 5-13. Víða léttskýjað, en skýjað og líkur á þokulofti vestantil. Hiti 5 til 18 stig að deginum, hlýjast suðaustanlands.Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti): Vestlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt vestanlands og við suðurströndina, annars bjart að mestu. Hiti 5 til 13 stig yfir daginn, hlýjast suðaustantil.Á föstudag: Norðan og norðaustan 3-10 m/s, þykknar upp og kólnar norðanlands. Stöku skúrir með ströndinni, en bjart með köflum og áfram milt sunnan heiða.Á laugardag: Suðlæg átt, 3-10 m/s. Dálítil súld með köflum sunnan- og vestantil en annars skýjað með köflum. Hiti 4 til 12 stig að deginum, hlýjast á Vesturlandi.Á sunnudag: Útlit fyrir suðaustlæga átt og rigningu með köflum, en yfirleitt þurrt norðaustanlands. Hiti breytist lítið.Á mánudag: Útlit fyrir fremur hægar og mildar suðlægar áttir og rigningu, en úrkomuminna norðaustanlands.