Nýr Mercedes-Benz GLC vakti mikla hrifningu á forsýningu hjá Öskju sem haldin var í gærkvöldi.
Bíllinn er alrafmagnaður og mun strax hafa vakið mikla athygli meðal gesta bílaumboðsins.
Sýningin var einnig haldin í tengslum við 140 ára afmæli Mercedes-Benz og var sérstök áhersla lögð á upplifun og umgjörð viðburðarins. Stella Rósenkranz var listrænn stjórnandi og stýrði áhrifamiklu afhjúpunaratriði sem markaði upphaf kvöldsins, að því er segir í tilkynningu.
Meðal gesta á forsýningunni var Mark Bartscherer, framkvæmdastjóri sölu Mercedes-Benz fyrir Evrópu og Mið-Asíu, sem kom til landsins í tilefni af frumsýningunni.
Gaman að sjá hulunni svipt af bílnum
Haft er eftir Jóni Trausta Ólafssyni, forstjóra Öskju, að viðtökurnar hafi verið afar góðar. Sérstaklega gaman hafi verið að sjá þegar bíllinn var loks afhjúpaður.
„Nýr GLC markar spennandi tímamót fyrir Mercedes-Benz og það er ánægjulegt hversu mikill áhugi er á bílnum hér á landi,“ segir Jón Trausti.
Nýr GLC skilar allt að 715 km drægni samkvæmt WLTP-staðlinum, nýtir nýtt 800 volta hleðslukerfi og kemur með nýja MB.OS stýrikerfinu frá Mercedes-Benz ásamt Digital Extras-appinu.
Boðað hefur verið til frumsýningar klukkan 12 á morgun, laugardaginn 30. maí, hjá Öskju að Krókhálsi 11 og hjá Öskju í Reykjanesbæ að Njarðarbraut 11.






