„Í tengslum við stórfelldan innflutning ólöglegra peptíða hingað til landsins sendi tollgæslan til greiningar tugi sýnishorna sem gerð voru upptæk úr póst- og hraðsendingum,“ segir í tilkynningu Lyfjastofnunar.
Notkun efnisins peptíð varð vinsæl eftir að áhrifavaldar hófu að sprauta sig með efninu í fegrunarskyni. Nokkrir hér á landi hafa leitað til eitrunarmiðstöðvar eftir að hafa sprautað sig með ólöglegu peptíði.
Nokkur sýni voru send, með milligöngu Europol, á rannsóknarstofu Evrópusambandsins en þau voru öll frá mismunandi seljendum í Kína. Í ljós kom að í stórum hluta sýnishornanna reyndist ekki vera hægt að staðfesta að virku lyfjaefnin sem áttu að vera í peptíðunum hafi verið þar.
„Hins vegar kom í ljós að mikil óhreinindi voru í sýnishornunum en slíkt er algengt þegar framleiðsla á sér stað við slæm skilyrði.“
Tekið er fram að notkun á slíkum lyfjum getur haft í för með sér margvísleg heilsufarsleg vandamál, sér í lagi þegar þeim er sprautað í líkamann.