Ferjan Baldur hefur siglingar í Breiðafirði á ný í dag eftir að hafa siglt milli lands og Vestmannaeyja síðustu vikur. Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, segir fyrirtæki heimamanna hafa tekið á sig mikið högg vegna fjarveru ferjunnar.
„Við erum mjög ánægð með það að Baldur hefji siglingar aftur í dag. Hann kom heim í gær og við búumst við því að Baldur muni hjálpa ferðaþjónustufyrirtækjum í Stykkishólmi að ná dampi aftur eftir að hafa tekið á sig mikið högg þegar Baldur var tekinn úr siglingu fyrr í sumar,“ segir Jakob.
„Auðvitað er það almennt þannig að við viljum hafa Baldur hjá okkur. Við viljum hafa hann í siglingum og það er virkilega ánægjulegt að fá hann til baka.“
Þungt högg fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu
Að sögn Jakobs hefur fjarvera Baldurs reynst fyrirtækjum í ferðaþjónustu sérstaklega erfið. Hann segist hafa fundið fyrir gremju innan samfélagsins þegar ákveðið var að færa Baldur til Vestmannaeyja fyrr í sumar.
„Herjólfur hefur verið í siglingum í allt sumar og Baldur hefur siglt með Herjólfi. Þetta er það sem íbúar kringum Breiðafjörðinn hafa verið að spyrja sig að – af hverju er Baldur í siglingum með Herjólfi í allt sumar?“
Jakob segir ekki kveðið á um það í samtali milli sveitarfélaganna í kringum Breiðafjörðinn að Baldur geti komið og siglt með öðru skipi. Þess í stað sé Baldri ætlað að gegna hlutverki varaskips þegar Vestmannaeyjaferjan er óstarfhæf eða vélarvana.
„Ég held að það sé skilningur á því og samstaða meðal fólks í kringum Breiðafjörðinn að Baldur sé varaskip fyrir Eyjamenn og jafnvel þurfum við að hanna og smíða ný skip sem henta betur til að vera líka varaskip fyrir Eyjamenn. En það að skipið sé tekið úr siglingu úr Breiðafirði til að sigla með öðru skipi hefur aldrei verið forsendan fyrir því að vera varaskip fyrir Herjólf.“