Það verður nóg um að vera í Hollywood í dag þegar 100 ára afmæli leikkonunnar Marilyn Monroe verður fagnað.
Við hið sögufræga kínverska leikhús (e. Chinese Theater) ætla aðdáendur leikkonunnar að koma saman til að syngja afmælissönginn. Búast má við að þar endurómi sögufrægur og ögrandi flutningur leikkonunnar á laginu í afmælisveislu John F. Kennedys Bandaríkjaforseta 1962.
Hundrað rósum verður komið fyrir utan leikhúsið til heiðurs Monroe. Þar staldra aðdáendur leikkonunnar sem eiga leið um Hollywood Boulevard gjarnan við en í gangstéttinni við leikhúsið má finna handaför leikkonunnar.
Í gær var opnuð sérstök sýning í safni bandarísku kvikmyndaakademíunnar þar sem ævi og ferli leikkonunnar ástsælu eru gerð skil. Þar má finna hundruð gripa sem sjaldan koma fyrir almenningssjónir, þeirra á meðal er bleikur kjóll sem Monroe klæddist þegar hún söng lagið Diamonds Are a Girl’s Best Friend í kvikmyndinni Gentlemen Prefer Blondes.
Í júní verða margar af þekktustu myndum Monroe sýndar í safninu, meðal annars The Asphalt Jungle, Niagara, The Seven Year Itch, Some Like it Hot og The Misfits.
Marilyn Monroe var fædd í Los Angeles þann 1. júní 1926. Hún mætti talsverðu mótlæti í æsku og ólst upp á fósturheimilum og munaðarleysingjahælum. Leið hennar inn í skemmtanaiðnaðinn lá í gegnum fyrirsætustörf og hún byrjaði að leika í Hollywood-kvikmyndum á fyrri hluta 6. áratugarins. Frægðarsól Monroe reis hratt og hún varð heimsfræg á örfáum árum. Hún var 36 ára þegar hún andaðist af of stórum skammti lyfja, í ágúst 1962.