Fjórar stöðvar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru kallaðar til um klukkan hálf eitt í nótt vegna mikils reyks sem barst frá þaki Rimaskóla í Grafarvogi í Reykjavík.
Tæpar tvær klukkustundir tók að slökkva eldinn, sem logaði í millilofti að sögn Sigurjóns Hendrikssonar varðstjóra. Eldinum fylgdi mikið reykjarkóf. Upphaflega var talið að ein stöð dygði til en svo reyndist ekki vera.
Áður en slökkvistarfi lauk við Rimaskóla barst tilkynning um að bökunarofn hefði ofhitnað í iðnaðarhúsnæði í Garðabæ og fyllt húsnæðið af reyk. Hann olli nokkrum skemmdum að sögn Sigurjóns.