Næturklúbbur í hinu fína Roma Norte hverfi í Mexíkóborg hefur tekið upp á því að rukka bandaríska gesti um margfaldan aðgangseyri miðað við það sem aðrir borgar. Segja forsvarsmenn staðarins að þetta sé gert í mótmælaskyni við Donald Trump og móðgana hans í garð Mexíkóa en einnig til að berjast gegn ferðamannavæðingu hverfisins og breytingum á íbúasamsetningu þess.
Verða Bandaríkjamenn nú að greiða sem nemur 37.000 krónum í aðgangseyri að klúbbnum en aðrir greiða sem nemur 1.100 krónum.
Næturklúbburinn, sem heitir Japan Nightclub, auglýsir þetta á Instagram og segir að í raun sé ekki verið að rukka Bandaríkjamenn um meira en aðra, þeir fái bara ekki afslátt eins og allir hinir.
Segir að ferðamenn frá öðrum löndum fái 93% afslátt en fólk frá Mexíkó og Latnesku-Ameríku fái 95% afslátt og námsmenn og kennarar fái 97% afslátt.
Federico Crespo, eigandi næturklúbbsins, sagði í samtali við The Guardian að þetta sé svar klúbbsins við áralöngum móðgunum Trump í garð Mexíkó og Mexíkóa. Hann sagði einnig að þetta séu viðbrögð við miklum ferðamannastraumi til Mexíkóborgar og breytingum á íbúasamsetningunni. Bandaríkjamenn og fólk frá öðrum löndum sé að taka hin fallegu Roma og Condesa hverfi yfir.