Tæknirisinn Meta, sem meðal annars rekur samfélagsmiðlana Facebook, Instagram og WhatsApp, var í dag sektað um 25 milljarða Bandaríkjadala. Upphæðin nemur um þremur trilljörðum króna, þ.e. þrjú þúsund milljörðum.
Sektin er sú hæsta sem Meta hefur fengið. Hana hlýtur Meta fyrir að hafa í áravís logið að notendum um notkun persónuupplýsinga notenda.
CJ Mahony, aðallögfræðingur Meta, segir að dómurinn þýði að það sé „svo gott sem ómögulegt að stunda viðskipti í Nýju Mexíkó“. Hann segir að Meta muni áfrýja dómnum.
Brutu ríkislög 40 milljón sinnum
Dómurinn féll í ríkinu Nýja Mexíkó. Ákæran snéri að aðkomu Meta, sem þá hét Facebook, að hinum svokallaða Cambridge Analytica-skandali. Fyrirtækið Cambridge Analytica notaði upplýsingar milljóna Facebook-notenda í pólitískri ráðgjöf, þar á meðal í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum árið 2016. Þá var Donald Trump kjörinn forseti í fyrra skiptið.
Meta var einnig sakað um að hafa vísvitandi afvegaleitt almenning um hvernig fyrirtækið hagnýtti efni sem innihélt hatursorðræðu. Þá hafi Meta afvegaleitt notendur um hvernig reglum gegn hatursorðræðu væri beitt.
Við dómsuppkvaðningu sagði Francis Mathew, dómari málsins, að lygarnar næðu út fyrir gagnanotkun Facebook. Þær væru eðlislægur hluti af viðskiptaháttum fyrirtækisins.
Lögfræðingar Nýju Mexíkó héldu því fram að allir íbúar ríkisins, um tvær milljónir manna, hefðu orðið fyrir áhrifum af óheiðarlegum viðskiptaháttum Facebook. Kviðdómur komst að þeirri niðurstöðu að Meta hefði brotið ríkislög Nýju Mexíkó oftar en 40 milljón sinnum.