Enn hefur ekki tekist að ná fullri stjórn á stórbrunanum í Drammen í Noregi. Það logar í skógi við hverfið þar sem eldurinn braust út í gær. Þó er minni hætta á útbreiðslu hans en áður. Hundrað íbúðir eru ónýtar. Enginn slasaðist alvarlega.
Um fjögur hundruð manns þurftu að yfirgefa heimili sín í hverfi í skógi vaxinni hlíð í Drammen síðdegis í gær þegar mikill eldur braust út í húsum þar. Neyðarhjálparmiðstöðvar voru opnaðar og margir fengu gistingu á hótelum í nótt eða hjá vinum og vandamönnum.
„Það er áfall að upplifa stórbruna sem hefur áhrif á svo marga íbúa,“ sagði borgarstjóri Drammen, Kjell Arne Hermansen, í viðtali við NRK, norska ríkisútvarpið.
„Okkur var sagt að fara og ég greip bara nokkra hluti með mér á leiðinni út,“ sagði Ronny Norstad, einn þeirra sem þurftu að yfirgefa heimili sitt, í viðtali við NRK. Svo hafi hann séð eld á bak við húsið sitt. „Ég stóð þarna með vatnsflöskuna mína þegar þyrla kom aðvífandi og hellti vatni yfir hverfið,“ segir hann.
Hundrað íbúðir eru brunnar til grunna. Tekist hefur að stöðva útbreiðslu eldanna í húsunum. Hann logar þó enn í nærliggjandi skógi. Þetta er mesti bruni í Noregi í seinni tíð, samkvæmt yfirmanni Almannavarna í Noregi. Hann segir að sem betur fer hafi ekki borist neinar tilkynningar um alvarleg slys á fólki eða að neinn hafi farist.
Nokkrir hafa þó verið fluttir á sjúkrahús vegna reykeitrunar og slökkviliðsmaður slasaðist lítillega.
Slökkviliðsmenn frá 17 slökkvistöðvum hafa barist við eldana. Þyrlur hafa skipt sköpum við slökkvistörfin og því bagalegt að um tíma í nótt voru þrumur og eldingar. Spáð er kærkominni rigningu í dag.