Verðbólga á evrusvæðinu mældist 3,3 prósent í síðasta mánuði. Það er mesta verðbólga í þrjú ár. Vaxandi verðbólga er ekki síst rakin til þess að orkukostnaður hefur aukist vegna stríðsins við Persaflóa.
Eldsneytisverð hækkaði um 14,3 prósent í ágúst og hafði þá þegar hækkað um 10,3 prósent í júlí.
Verðbólgan jókst mikið milli mánaða, fór úr 2,9 prósentum í júlí í 3,3 prósent í ágúst. Verðbólgumarkmið Seðlabanka Evrópu gengur út á að verðbólga sé um tvö prósent.