Bilbao sigraði Tenerife, 87:82, á útivelli í efstu deild spænska körfuboltans í kvöld.
Tryggvi Snær Hlinason var maður leiksins hjá Bilbao en hann skoraði 20 stig, tók ellefu fráköst og gaf tvær stoðsendingar.
Skoraði hann bæði mest fyrir Bilbao og tók flest fráköst.
Elvar Már Friðriksson skoraði sjö stig, tók eitt frákast og gaf tvær stoðsendingar fyrir Tenerife.