Verð á matvælum og annarri dagvöru stóð hér um bil í stað milli júlí og ágúst, samkvæmt mælingum verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands.
Vöruverð hækkaði að meðaltali um 0,14 prósent milli mánaða. Verðlagseftirlitið kannaði verð á 561 vöru.
Í tilkynningu frá ASÍ segir að mikill og viðvarandi verðmunur sé á sömu vörum eftir því hvar fólk gerir innkaup sín. Prís var oftast með lægsta verðið og 10-11 oftast með hæsta verðið. Miðgildi hæsta og lægsta verðs var um 42 prósent. Af þeim vörum sem fengust í tíu verslunum í ágúst munaði 30 prósentum eða meira á hæsta og lægsta vöruverði í átta af hverjum tíu vörum.