„Upphaflega hugmyndin var að endurskilgreina hvernig lestur gæti litið út á stafrænum miðlum,“ segir Helena Rut Sveinsdóttir, grafískur hönnuður, en hún og eiginmaður hennar, Gunnar Bjarki Björnsson tölvunarfræðingur, og Auður Gyða Ágústsdóttir grunnskólakennari, eru stofnendur Undralings.
Lestrarappið Undralingur er hugsað fyrir börn á aldrinum 5-9 ára og í appinu er blandað saman gagnvirkum ævintýrum og einstaklingsmiðuðum lestrarstuðningi. Þar er hægt að lesa bækur sem eru settar fram sem lifandi gagnvirkir söguþræðir, sem tvinna saman hreyfigrafík, hljóð, texta og þrautir með það að markmiði að gera unga lesendur að virkum þátttakendum í sögunni sjálfri.
Framsetning efnisins er litrík og til þess fallin að fanga athygli barnanna. Nú þegar eru 20 bækur komnar og stöðugt bætist við.
Skjáskot/Undralingur lestrarapp
Nýta stafræna möguleika
Helena segir að ástæðan fyrir því að þau fóru að þróa appið hafi verið umræðan um slakan lesskilning barna á Íslandi og skort á viðeigandi námsefni, en appið hefur verið í þróun í nokkur ár.
„Við erum foreldrar ungs barns og vildum leggja okkar af mörkum til að taka á þessari stöðu og fannst að best væri að styrkja yngstu börnin í lestri. Eitt af okkar helstu markmiðum er að vekja aukinn áhuga á lestri meðal krakka og að hjálpa þeim til þess að geta lesið sér til gagns og gamans,“ segir hún.
„Á sama tíma vildum við nýta þá möguleika sem stafrænir miðlar bjóða upp á til að styðja betur við unga lesendur og bjóða þannig upp á fjölbreyttari leiðir við hefðbundna lestrarþjálfun,“ segir hún og leggur áherslu á að nálgunin sé skemmtileg og örvi áhuga barnanna. „Við vildum brúa bilið á milli afþreyingar og kennsluefnis.“
Hægt að sérsníða viðmótið
Helena segir að í Undralingi sé hægt að velja um breytileg þyngdarstig og lestrarstuðning sem hentar hverjum og einum. „Ef farið er með fingurinn undir orð er hægt að heyra orðið og einnig er t.d. hægt að spila textann og lesa með, eða lesa stök orð, bókstaf fyrir bókstaf.“
Hún segir að stafrænar menntalausnir eins og Undralingur geti nýst mjög vel í skólakerfinu, þar sem nemendur eru með mismunandi getu innan sama bekkjar, svo ekki sé minnst á nemendur sem ekki hafa íslensku að móðurmáli.
„Við þurfum einmitt fleiri slík verkfæri fyrir kennara og foreldra sem styðja við börnin í lestrarnáminu og gera námið spennandi.“
Helena segir að Undralingur sé settur upp eins og bókaklúbbur og hægt sé að vera í áskrift sem hentar bæði foreldrum barna og einnig stærri aðilum í skólakerfinu sem vilja nota þessa lausn fyrir fjölbreytta bekki.
„Við höfum skrifað allt efnið sjálf í Undraling og nú þegar eru 20 bækur aðgengilegar sem henta mismunandi aldri og það bætist stöðugt í safnið,“ segir Helena og segir að sögurnar séu spennandi ævintýri sem börn hafi gaman af. „Við sjáum að áskrifendum hefur fjölgað hratt undanfarið, bæði hjá foreldrum og skólum. Svo fáum við góða endurgjöf frá notendum og skemmtilegast að sjá hvað krakkarnir eru að segja sjálfir um hvað þeim finnst skemmtilegast.“
Þreföld verðlaun
Undralingur fær ekki eingöngu góð viðbrögð frá notendum lestrarappsins, heldur hlaut það þrenn verðlaun á Íslensku vefverðlaununum sem afhent voru í Hörpu 26. mars sl. og var valið bæði verkefni ársins, app ársins og stafræn lausn ársins. Því er ljóst að framtakið á mikið erindi við samtímann.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.