Netverjar gera stólpagrín að Mark Zuckerberg, forstjóra Meta, eftir að birt var myndband af honum að smakka Guinness. Virðist honum ekki líka bragðið.„Mark Zuckerberg að þykjast njóta Guinness er nýja uppáhalds efnið mitt,“ segir einn netverji í athugasemd við myndband sem nú gengur með netheima.Um er að ræða viðtal við Zuckerberg og Alexander Wang, yfirmann gervigreindarmála hjá Meta, í hlaðvarpinu Cheeky Pint sem maður að nafni John Collison stýrir. En þar er spjallað við fólk á meðan sopinn er bjór, oftast hinn þekkti írski bjór Guinness.
„Mark Zuckerberg að þykjast njóta Guinness er nýja uppáhalds efnið mitt“