Margrét Þórhildur, fyrrverandi Danadrottning, er útskrifuð af sjúkrahúsi. Hún var lögð inn á mánudag vegna blóðsöfnunar í mjöðm í kjölfar falls. Það var í annað sinn á tveimur vikum sem hún var lögð inn á sjúkrahús.
Í fréttatilkynningu frá dönsku konungshöllinni segir að Margrét sé á heimleið til Fredensborg-hallarinnar frá Ríkisspítalanum
Samkvæmt frétt DR var Margréti ráðlagt að taka því rólega næstu daga.