Margrét Friðriksdóttir var í dag sakfelld í Héraðsdómi Reykjaness fyrir ummæli sem hún lét falla um Barböru Björnsdóttur héraðsdómara.
Hilmar Garðars Þorsteinsson, lögmaður Margrétar, staðfestir í samtali við fréttastofu að niðurstaða dómsins hafi verið að Margrét skyldi greiða 200 þúsund króna sekt. Að öðru leyti gat hann ekki tjáð sig um hann að svo stöddu.
Málavöxtu má rekja til þess að Margrét sakaði Barböru um fölsun vitnisburða, lauslæti og misnotkun dómsvalds. Hún sakaði Barböru meðal annars um hjúskaparbrot og ástarsamband við Símon Sigvaldason, sem var um skeið dómstjóri í Héraðsdómi Reykjavíkur. Barbara kærði ummælin, sem voru rituð í Facebook-færslu, til lögreglu sem gaf út ákæru fyrir ærumeiðingar og aðdróttanir.
Ummælin lét Margrét falla eftir að Barbara sakfelldi hana í héraði fyrir líflátshótanir í garð annarrar konu. Margrét var sýknuð í því máli í Landsrétti árið 2023.
„Ég taldi mig ekki vera að móðga hana neitt svakalega,“ sagði Margrét um ummæli sín um Barböru við aðalmeðferð í janúar.